Dagamunur að sönnu
Í gær þann 17. desember gerðum við okkur dagamun í Reykjavíkurkirkju. Óperukórinn og vinir héldu aðventutónleikar eins og svo mörg ár áður. Að þessu sinni var með þeim Karlakór Kópavogs. Kórarnir fluttu 23 yndisleg jólalög sem okkur eru svo kær og því má sannarlalega segja að jólaandinn hafi svifið í loftinu.
Sagt hefur verið að erfitt sé að fylla kirkjurnar nú á dögum. Sú var ekki raunin í gær. Það féll m.a. í hlutverk fréttamannsins að reyna að finna pláss fyrir gestina en meira að segja forstofa kirkjunnar var á stundum gjörsamlega yfirfull. Á endanum tókst þó að finna sæti fyrir nánast alla. Ætli það hafi ekki verið hátt í 300 manns í kirkjunni okkar.
Aðal fréttin er þó ekki að kirkjan fylltist af fólki. Miklu mun mikilvægara er að kirkjan fylltist af gleði, tilhlökkun og friði með fallegri tónlist.
Við þökkum kórunum, einsöngvurunum, Hólmfríði fyrir píanóleik og Garðari okkar fyrir þessa yndislegu stund.
GLEÐILEG JÓL, KÆRU VINIR
Last Updated on Sunday, 18 December 2011 14:22
Hits: 308
Gestir frá Þýskalandi
Um þessar mundir halda fjórtán ungmenni til í Reykjavíkurkikju en þetta er skátahópur frá Marienhöhe skólanum í þýskalandi (http://www.marienhoehe.de).
Ungmennin sem eru í næstefsta bekk í menntaskóla komu til landsins í gær, 30. september um munu vera hér í viku. Þau ætla sér að fara í Landmannalaugar í þrjá daga frá þriðjudeginum. Við óskum þeim góðar ferðar og að þau mættu njóta dvalarinnar á Íslandi. Nú er bara vonandi að haustlægðirnar verði ekki of krappar á meðan þau eru úti á fjöllum.
Last Updated on Sunday, 09 October 2011 21:36
Hits: 999
Viðburðadagatal 2011
Vinsamlega látið Manfred vita ef breytingar verða eða þegar nýjir viðburðir detta inn. ( This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. )
Last Updated on Friday, 11 March 2011 11:20
Hits: 965
Beint frá Reykjavíkurkirkju
Nú er hægt að fylgjast með samkomum í Aðventkirkjunni í Reykjavík í beinni útsendingu.
Last Updated on Saturday, 01 January 2011 10:22
Hits: 892
Góðir gestir í Aðventkirkjunni í Reykjavík
Kvöldið 21. nóvember var húsfyllir í Aðventkirkjunni í Reykjavík þegar Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur heiðruðu okkur með nærveru sinni og fallegum söng.
Með gleði og stolti sáum við hve vel þessi hópur, tæplega 120 söngvara komst fyrir í kirkju okkar og hversu söngur þeirra naut sín.

Smelltu til að fá pdf útgáfu