Eins og í gamladaga

Addi rifjaði upp að á yngri árum sínum var hann oft örlítið kvíðinn að koma í kirkju vegna þess að hann þurfti að fá sæti við enda á bekknum vegna fötlunar sinnar.
Þá kom fyrir á stundum að þessi sæti voru upptekin.
Þetta hefur nú um árabil ekki þurft að vera áhyggjuefni hjá honum.
En þegar hann kom í kirkju síðasta hvíldardag, 15. október þá blasti við honum nánast full kirkja.
Kvíði var þó það síðsta sem var í huga hans og annarra hér í Vestmannaeyjasöfnuði. Viku seinna eru þau enn ákaflega glöð og þakklát fyrir góða heimsókn og ánægjulega samveru.
Vestmannaeyjasöfnuðurinn sendir ungmennahópnum kærar kveðjur og vonar að sjóferðin verði betri í næstu heimsókn.
Last Updated on Sunday, 23 October 2011 19:33
Hits: 655
Krakkadagar í Vestmannaeyjum
Dagana 25. - 27. nóvember voru krakkadagar í Aðventkirkjunni í Vestmannaeyjum. Manfred og Þóra sögðu krökkunum sögur úr Biblíunni og föndruðu með þeim.
Eyjafjallajökull frá Vestmannaeyjum
Helgina 17. apríl sást eldgosið í Eyjafjallajökli alveg sérstaklega vel. Þegar tók að rökkva voru eldingarnar nánast óhugnarlegar.
File don't exists.
Hjá mörgum Vestmannaeyingum komu upp gamlar minningar frá gosinu í Eldfelli árið 1973.
Last Updated on Friday, 23 April 2010 11:57
Hits: 661