A+ A A-

Um útsendingar á Netið

silverlight detailFrá árinu 2009 höfum við gert tilraunir með beinar útsendingar frá guðsþjónustum okkar í Aðventkirkjunni í Reykjavík. Á haustdögum 2010 tókum við upp samstarf við Margmiðlun til að kanna möguleika á útsendingum og til að þróa gæði á mynd og hljóði.

Við höfum ætíð lagt áherslu á hljóðgæðin en nýlega höfum við verið að fikra okkur áfram einnig með myndgæðin. Við höfum nú fengið háhraða örbylgjutengingu sem mun á endanum gefa okkur möguleika á að senda út í háskerpu.

Við erum fyrst og fremst að hugsa til trúarsystkina okkar í Vestmannaeyjum í því samhengi, því að það var að þeirra frumkvæði að þessar útsendingar hófust og voru þær upphaflega eingöngu sendar út til þeirra.

Með betri tækni höfum við getað gert útsendingarnar okkar aðgengilegar almenningi.

Hér er listi yfir sem sýnir útsendingardaga okkar síðan í nóvember 2010 og fjölda gesta.

WMS Hvildardagar

Við sjáum ekki aukningu, en stöðugan hóp gesta þ.e. tölvur sem taka við efninu sem eru að meðaltali sex. Þetta merkir að á bilinu 10-20 tölvur taka við guðsþjónustum okkar úr fjarska og geta áhorfendur verið fleiri enda eru m.a. í Vestmannaeyjum heill hópur fólks komin saman til að fylgjast með.

Það er ráðgáta hvers vegna gestafjöldinn rýkur upp á tilteknum dögum. En það sama gerist einnig í kirkjum okkar. Sennilega er þar ekki um eina staka skýringu að ræða heldur koma saman fjöldi óskyldra ástæðna.

Gestir okkar koma lang flestir frá Íslandi en önnur lönd finast líka á listanum:

WMS lond

 

Hár fjöldi gesta frá Sviss kemur til vegna ættartengsla Manfreds, en móðir hans er reglulegur gestur.

 

Last Updated on Monday, 14 May 2012 23:28

Hits: 20

Um vefinn okkar

LOGO-NOTEXTVefurinn okkar í þeirri mynd sem hann er núna hefur nú verið uppi frá því í mars 2010, þ.e. í tvö ár. Þetta gefur tilefni til að skoða nánar hvernig hann hefur verið notaður og hver heimsækir hann.

 

 

 

Last Updated on Thursday, 10 May 2012 16:40

Hits: 41

Read more...

Ungmennahelgin á Hlíðó í febrúar 2012

hlidardalsskoliHelgina 24. - 26. febrúar stóð æskuýðsráð fyrir helgi á Hlíðardalsskóla fyrir unglinga á aldrinum 13 - 17 ára með í för voru einnig nokkrir eldri sem hjálpuðu til við að gera þetta að veruleika.  

Góður hópur mætti á Hlíðardalsskóla á föstudagskvöldi þar sem Aðalbjörg, Laila og Kiddi höfðu eldað kvöldmat handa þeim.  

Eftir að allir höfðu komið sér fyrir var samkoma þar sem var sungið og Laila talaði til krakkanna og þau unnu verkefni úr Biblíunni.    Laila var með allar samkomurnar og náði mjög vel til krakkanna eftir helgina fékk ég að heyra hvað sögurnar hennar Lailu hafi verið fallegar og skemmtilegar.  Mikið var um hreyfingu bæði inni og úti, við fengum lánaðan hellabúnað og fórum í Arnarkerið með hópinn og svo var mikið leikið í salnum og farið út að labba í myrkrinu. Áður en við fórum heim á sunnudeginum var farið í sund í Hveragerði þar sem Jón og Kiddi sprelluðu með krökkunum í sundi.  Vinsælt var að stökkva á stökkbrettinu jafnvel þó lendingin hafi ekki verið góð.  

Helgin var auglýst í Suðurhlíðarskóla því okkur langar að tengja meira saman skólann og kirkjuna og vonum að krakkarnir í skólanum viti að þau eru velkomin í kirkjustarfið hjá okkur.  Það voru 10 nemendur sem slógust í hópinn og nutu þess út í ystu æsar.  

Samkvæmt skrifum krakkanna á Facebook er ekki annað að sjá en allir hafi skemmt sér vel og notið samverunnar.  

Við þökkum Lailu kærlega fyrir að hafa tekið tíma til að vera með okkur. 

Æskulýðsráð.  

Last Updated on Thursday, 01 March 2012 22:19

Hits: 325

b3d heyrir sögunni til

rimaJæja. Ríma, salurinn sem var okkar í hálfan mánuð er aftur eins og hann var áður. Ekkert bendir til þess að við höfum verið þar. Við trúum þó að mininigar standi og hjörtu þeirra sem heimsóttu okkar séu breytt. Öllum þeim sem lögðu lið í þessu sögulega verkefni þökkum við innilega fyrir.

Þetta var einstakur tími.

 

Last Updated on Monday, 20 February 2012 08:21

Hits: 276

Fréttir af B3D

b3d opna_sm

 

 Hér má sjá yfirlit yfir sýningu okkar í Hörpu:

 pdfYfirlitsmynd289.97 KB

 

Last Updated on Saturday, 03 December 2011 08:10

Hits: 542

Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi 2012 | Suðurhlíð 36 | 105 Reykjavík | s. 588 7800 | adventistar.is

Login or Register

LOG IN